Mexíkóski flugherinn hefur sent frá sér myndband sem sýnir 11 skær ljós á mikilli hreyfingu á himninum. Upptakan fór fram með innrauðri myndavél. “Við erum ekki alein. Þetta er svo undarlegt,” heyrðist flugmaður segja í flugvél þar sem upptakan fór fram. Varnarmálaráðuneytið í Mexíkó hefur staðfest að upptakan sé á vegum flughersins, en hefur neitað að tjá sig um innihald hennar, að sögn BBC. Mexíkóbúinn Jaime Maussan, sem rannsakar fljúgandi furðuhluti, segir að hundruð myndbanda hafi komið...