ég vil það ekki. Mér finnst þessar grímur þeirra asnalegar og tónlistin leiðinleg. Fílaði þá fyrir 5 árum, en svo fékk ég bara þvílíkt ógeð á þeim, og finnst þeir alveg drepleiðinlegir núna
þú verður svona heiðursfélagi, þannig að við í pósfélaginu sitjum við svona langt borð og það er stór pós-mynd af þér við annan endann á borðinu sem við tilbiðjum. Þá ertu með en sleppir við allt svona dót sem tengist því að vera beinn meðlimur, þú ert svona óbeinn meðlimur í félaginu. Sáttur við það ?
ég veit ! ég er þessi sem á að vera með giftingahringinn en fatta svo alltaf þegar athöfnin er byrjuð að ég hafi týnt honum en svo þegar ég fer að leita að honum fatta ég að ég hef troðið honum á tunguna á mér og fest hann svo það þarf að tefja athöfnina um nokkrar mínútur á meðan það er verið að leita eftir lækni sem kann að fjarlægja hringinn. má ég það ?
*segi ekkert* samt skondið að ég eigi alltaf erfitt með að hætta að tjá mig hérna, en í real-life er ég frekar feiminn og finnst frekar óþægilegt að þurfa að tala fyrr en ég þekki manneskjuna sem ég tala við
ég er reyndar á kafi í Death metal núna sem er frekar þung tónlist, en jú, ég er rosa Maiden fan. Finnst Nevo bara ekkert vera svo rosaleg hljómsveit, samt alveg örugglega inni á topp 10 yfir bestu íslensku hljómsveitirna
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..