Það voru frekar margir á Wacken, sem útskýrir kannski enn minna lífsmark en vanalega. En já, ég er sammála, þetta er allt of dautt og einhæft áhugamál, miðað við það hvað margt er í gangi í metalnum úti í heimi. En ég man ekki betur en að það hafi verið frekar lítið um metal tónleika á sumrin miðað við hvernig það er á veturna, þá finnst mér tónleikahrinan byrja. En annars eru Momentum að fara að spila á föstudaginn ásamt Celestine, það er allvega eitthvað.