Einn skemmtilegasti knattspyrnumaður sem leikið hefur hér á landi, Scott Ramsey, mun líklega ekki spila hér á landi í sumar. Ramsey gekk til liðs við íslandsmeistara KR í vetur en undanfarin fimm tímabil hefur hann leikið með Grindvíkingum, alls 81 leik í úrvalsdeildinni og skorað 8 mörk. Það var árið 1996 sem hann kom fyrst hingað til lands en þá lék hann í tvö ár með Reyni úr Sandgerði. Í fréttatilkynningu sem KR-Sport sendi frá sér um helgina stendur: “Það tilkynnist hér með að Scott...