****SPOILER***** - ef þú ert ekki búinn með bók nr. 29 í Ísfólkinu. Gráa fólkið gegnir mikilvægu hlutverki í Ísfólksbókunum og hefur áhrif á mikinn hluta söguþráðarins. Þó er það aðeins til staðar í miðjum bókaflokkinum, frá ca. bók nr. 13 til nr. 29. Höfundurinn, Margit Sandemo, virðist hafa séð Gráa fólkið ljóslifandi fyrir sér, því í bók nr. 23, Vorfórn, er útskýrt nákvæmlega hvað þetta Gráa fólk er og hvernig það hagar sér: „Gráa fólkið eru allar þær verur, sem lifa í skuggaheimi rétt...