Augnablikið, hvað gat ég sagt um það. Var það eins og kona sem ég vildi njóta. Ef það var svo þá vil ég játa það, hér með, að hún reyndist mér erfið á köflum. En hvað hefur Guð gefið okkur mönnunum annað en augnablikið og ef augnablikið er kona þá er erfitt að fá skilnað, því ef maður leitar aftur fyrir sig til fortíðar þá er maður einungis að leita þess sem hún hefur þegar skapað. En hverskonar kona er augnablikið? Lítum á, er hún ekki stundum eins og skækja sem hrópar á tópak og brennivín....