Ég er með spurningu frá einum félaga mínum sem er að koma til Íslands i sumar… hvar er hægt að surfa í nágrenni Reykjavíkurs og er eitthver staður sem leigir út bretti og blautbúning (ekki væri verra að vita kostnaðinn). Þetta er vanur brimbretta gaur frá Trinidad og surfar núna þegar tækifæri gefst hér á Miami. Veit að honum langar rosalega mikið til kanna Íslensku öldurnar…. ef eitthver getur aðstoðað þá yrði það æði. Kveðja frá Miami