Cech segir að Giggs hafi ýtt sér yfir línuna og því hafi ákvörðun dómarans um að dæma ekki mark verið rétt. ,,Boltinn var ekki yfir línunni þegar ég varði skotið en Giggs sparkaði í andlitið á mér þegar hann renndi sér í návígið og ýtti mér yfir línuna,” sagði Cech. Þrátt fyrir dramatískar lýsingar Cech á atvikinu sýna endursýningar í sjónvarpi hinsvegar svo ekki verður um villst að boltinn fór vel yfir línuna og virðist sem að Cech hafi sjálfur fálmað boltanum inn fyrir línuna eftir dálitla...