Sláðu bara töluna inn á myndina, getur ekki sett 90, þannig að settu bara 89 og sjáðu hversu nálægt þetta nær því að verða beint strik. Ef þú gætir sett þetta á 90 þá væri þetta bara beint strik upp.
Ég get látið þig fá myndrænt dæmi: Regla: Tan(v) = Cos(v) / Sin(v) Segjum að v = 90° Þá er Tan(90) = Sin(90) / Cos(90) Nú er það svo einfalt að Sin(90) = 1 og Cos(90) = 0 Þá fær maður Tan(90) = 1/0 Farðu svo inná http://www.ies.co.jp/math/java/trig/tanbox/tanbox.html og settu inn 89° fyrir gildi á tangens og þá sérðu hvað myndi gerast ef að þú settir tan (90), það að þú fengir ekkert svar. Sama gildir með tan(270) og fleiri tangens gildi. Bætt við 23. október 2006 - 18:56 Reglan er að...
Hér eru tveir: Hvað ertu að gera með þessi blöð og þennan kassa? (Herðarblöð og brjóstkassa) Svo á ég til Heisenberg bílabrandara svipaðann og þinn: Ég keypti mér bíl frá Heisenbreg. Þegar ég leit á hraðamælinn týndist ég!
Ef þú ert stærra félagið getur þú sent leikmenn þína í lán þangað án nokkura samninga og keypt leikmenn úr litla félaginu á verði sem þér hentar (jafnvel 0 kr.). Ef þú ert minna félagið… þá er ekki mikið sem þú færð úr þessu nema lánssamning og árlegt fé sem þú færð greitt frá þeim.
Ég verð að segja að ég er mjög sáttur við þær í þessum leik! Er búinn að verða meistari 1 sinni með KR (á tveim árum) og eins og ég hef sagt áður þá eru félagsskiptin mjög flott og nákvæm. Fyrir utan kannski lánssamninana en það er í lagi.
Er ánægður með smáatriðin í íslensku deildinni. Allir sigurvegarar deildarinnar hafa verið rétt skráðir og öll félagsskipti eru ný og flott (Vantar þó Guðmund Pétursson í KR!)(En það var svosem ekkert mál að fá hann í lán!:D). Einnig er flott að hafa varalið, sem að er í langflestum þessara tilfella 2. flokkur hjá félögunum og þekki ég nokkra þar :D. Eina sem vantar uppá eru merki félagsliðanna en þau koma. Bætt við 18. október 2006 - 20:11 Hefði samt viljað sjá 2. deild, hehe.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..