Nei Tjéténía var innlimuð í Rússneska keisaradæmið uþb árið 1850 en Túrkemistan, Uzbekistan og allt það voru sovietlýðveldi, aldrei partur af rússlandi… mig minnir að tjéténía hafi aldrei verið sovietlýðveldi, bara landspartur af rússlandi.
Tjah… Tjéténía hefur verið partur af rússlandi í uþb 150 ár núna. Núna kem ég með eitt frekar barnalegt dæmi… snæfellsnesingar finna gríðarlega mikið af gulli á snæfellsnesi. í stað þess að hinn hluti þjóðarinnar fái eitthvað af auðnum ákveða þeir að reyna stofna nýtt land, Snæfellsland, og sitja einir að auðnum. Svona má líka horfa á þetta… nema þetta er kannski pínu öfgakennt:)
Ég skil vel að það sé gyðinga/ísraela hatur hjá fólki í miðausturlöndum… þar sem gyðingar/ísraelar eru með bölvaðan yfirgang og láta eins og þeir séu eitthvað æðri aröbum og taka þeirra lönd. Gyðingahatur í evrópu… það kannski fer alveg framhjá mér… en ég tek mjög sjaldan eftir því né heyri um það nema kannski að hópur nýnasista í frakklandi saurguðu 2 grafir gyðinga. Á meðan völtuðu Ísraelskir skriðdrekar yfir smábæ í palestínu, þyrlusveit Ísraelsmanna skaut eldflaugum á bílalest...
Skuggi, þú hefur væntanlega líka íhugað hvaða áhrif frjáls notkun vímuefni gæti haft á yngri kynslóðirnar? Ég held að útkoman þar gæti orðið andskoti skrautleg…
Vegna þess að ég tel tilgang hnetna, einkabíla og skyndibitastaða vera mun göfugari en einhver andskotans eiturlyf sem koma manni í vímu, gera mann háðann þeim og valda því hugsanlega að maður drepist beint eða óbent af völdum þeirra. Nema það séu bara allt lygar?! Afhverju heldur þú að fleiri látist af völdum hnetna en E-taflna… hugsanlega vegna þess að mörghundruðþúsundfalt fleiri neyta hnetna í stað e-taflna… ætli hnetur hafi ekki líka bjargað fleiri mannslífum en E-töflur.. það er spurning:P
Já kannski bara að gera þetta löglegt… allt í besta lagi að horfa uppá félaga sína eyðileggja líf sitt með þessu og drepast. Findist þér ekki í besta lagi að einhver fáfróður vinur þinn byrji að neyta fíkniefna bara til þess að vera “kúl” og drepast svo? Ég vona ekki…
Ekki gleyma því að stjórnvöld banna líka væntanlega þessi eiturlyf vegna þess að það kemur í þeirra hlut að punga út pening í heilbrigðiskerfið svo það geti haldið þessum skemmdu hasshausum á lífi og sent þá í meðferð…
Rosalega lætur þú smábarnalega… skyndibitamaturinn hefur þann tilgang að seðja hungur fólks ekki satt? Það er reyndar mjög lítil næring í viðbjóð á borð við McDonalds en það er líka til næringarríkur skyndibitamatur s.s. Subway. Áfengi er að mínu mati allt í lagi en drykkir með óhóflega miklu alkóhólsmagni eru slæmir… ef ég mætti ráða yrðu þeir bannaðir… ég veit nú ekki hvort að allir yrðu sáttir við það samt:) einkabílar? afhverju að banna þá? ætti ekki líka bara að banna kúlupenna til þess...
Nei ég myndi ekki styðja þá í hvert skipti sem þeir kæmu með tillögur að einhverjum bönnum… ef að allt fólk væri með bein í nefinu þyrfti auðvitað ekki að banna eiturlyf en svo er bara ekki.
Ég er fullkomlega sáttur við það að stjórnvöld komi í veg fyrir að ég og annað fólk séum að drepa okkur vegna einhverra óþarfa eiturlyfja. Ætli maður taki nokkuð eftir því hversu mikilvæg heilsan sé nema þegar hún er farin frá okkur?
Þessi grein þín skuggi er mjög góð… nema ég er ekki sammála þér með áfengi og tóbak. Mér finnst að það eiga að hækka verð á sterku áfengi og tóbaki stórlega og svo ætti að hafa strangt bann á þessum eiturlyfjum. Góð grein engu að síður:)
Jújú… þetta er T-95… hann heitir reyndar T-80UM2 eða eitthvað rétt eins og t-90 sem er einhver útgáfa af t-80 drekanum. Eða þetta skilst mér… þessi er allavegan sá nýjasti hjá rússunum og getur tekið alla hina í rassgatið!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..