Jamms, svona til að svara þessu, þá voru greinileg ummerki innbrots í herberginu mínu, því að stormjárnin úr glugganum höfðu verið skrúfuð úr. Það finnst þeim ekki greinileg ummerki innbrots, heldur forsenda til að hafna mér fyrir lélegan frágang frá íbúðinni. Með öðrum orðum, þeir vilja ekki bæta mér þetta, af því þeir vilja meina að ég hafi skilið gluggan eftir svona, sem ég gerði ekki, og það hefur tekið næstum 3 mánuði að reyna koma því í gegn… ennþá án árangurs.