ókei ég er búinn að týna umslaginu af Rottweilerdisknum mínum, get ég einhvers staðar séð hverjir rappa á þessu lagi? Ég man eftir Bent, Erpi, Svarta lunga, Messíasi, en ekki fleirum…
ókei þegar kalt er í veðri verða varirnar á mér eins og Kalaharí… og við því nota ég varasalva, en þá lít ég út fyrir að vera með gloss eða hvað það nú heitir er enginn varasalvi sem hefur ekki þau áhrif?
www.myspace.com/apathy ^langaði bara að deila þessu, nokkur sjúk lög þarna, þessi gaur er einhver besti underground sem ég hlusta á. og það er hægt að DL-a líka, mæli sérstaklega með Personal Jesus og Fuck you
„smámælti Þjóðverjinn“ http://www.soundclick.com/util/getplayer.m3u?id=3685226&q=lo http://www.soundclick.com/util/getplayer.m3u?id=3685226&q=hi í fyrsta lagi er ég ekki alveg viss hvort píanó loopið er í sama hljómi, en mig vantar líka að vita hvort ruglið í lokin er að gera sig, og bara yfir höfuð hvort þetta er drasl, eða e-ð sem ég ætti að vinna áfram með með fyrirfram þökk
Ég er á 18. ári, ég verð 18 í sumar, og mig langar að spyrja eins. Má ég ekki kjósa í vor, af því ég verð ekki orðinn 18? Semsagt, ef ég yrði 18 daginn fyrir kosningar, mætti ég þá kjósa, en ekki ef ég yrði 18 t.d. daginn eftir kosningar?
ok, Quarashi hætti og svona, hvað eru Sölvi, Egill, Ómar og Steini eiginlega að gera núna? Engin tónlist í gangi eða? Heyrði af einhverju með Steina… Og já ef einhver veit hvort Hössi er að gera e-ð væri það vel þegið líka…
ok ég ætlaði að setja Guerilla Disco diskinn minn inn í iTunes…en nei, þá þarf iTunes að vera með vesen. þannig að ég fór og tékkaði, og lögin á disknum eru .wma… er engin leið að setja þess háttar inn í iTunes?
veit einhver hvort það er einhvers staðar á netinu? ég á sko Jinx diskinn, en mig langar að sýna fólki þetta myndband gegnum netið… og já, ég er að tala um myndbandið þar sem Hössi er sjómaður, Ómar keppir á hundasleðum og svo framvegis…
ok það hefur kannski verið einhver þráður um þetta áður, en hvernig líst mönnum á Fræ? tékkaði á lögunum á myspace, býsna gott barasta fannst mér og meðal annarra orða, hvernig ber maður fram Sadjei? eins og það er skrifað eða?
Mixtape sem kom út fyrir svolitlu síðan, samstarf Fort Minor og Green Lantern aðallega. „The mixtape features collaborators such as Demigodz members Styles of Beyond, Apathy and Celph Titled, as well as Juelz Santana, Wu Tang Clan's Ghostface and Lupe Fiasco.“ http://www.fortminor.co.uk/mixtape/
allt sem við eigum, sjáum og gerum megum við um efast og hvað við erum getum ekki neitað því að því gætum ekki lifað í þeirri blekkingu sem Matrix á klifar en tíminn heldur áfram og klukkan tifar og ég held minni för áfram upp þessa stiga spurningin glymur, kemst ég til himna væri loksins gott honum guði að kynnast kemst þá kannski að örlögum hinna og mun spyrja þess hvenær öllu mun linna kannski mun ég einhver svör finna áður en í höfði mér mun dimma er það sem ég sé raunveruleikinn? get ég...
Fín könnun og allt það, en þetta er engin spurning fyrir mér. Þó að Ether frá Nas hafi verið mun betra lag en Takeover, þá er Jay-Z einfaldlega betri. ég er ekkert að segja að Nas sé lélegur, mér finnst hann fínn, en Jay-Z bara betri.
mig langar að semja eitthvað, þó það væri nú ekki nema einhver svona grín tónlist, bara eitthvað að fíflast, veit einhver um ókeypis forrit til að semja tónlist? eitthvað sem ég get dlað einhvers staðar?
hérna er smá ríma sem ég samdi um daginn. hafið samt í huga að ég er sjálfur nýliði í þessu, ekki búast við neinu merkilegu. Rappið það krefst hæfileika en þeir eiga ekki möguleika En ég er ekki mættur hér bara til að stæra mig Svo að ekki fara að dissa mig núbbann og reyna þannig að særa mig Kannski fer fyrir mér eins og flestum að ég þarf loks að færa mig Því ég veit vel að núbbar þeir kunna ekki rassgat Telja sig besta en hafa einfaldlega of mikið hassað Með ömurlegar rímur og takta sem...
hvað er málið með könnunina? í fyrsta lagi mætti hafa svona 3svar sinnum fleiri valmöguleika. ó öðru lagi væri nær að hafa þessa könnun allavega þegar nær dregur keppni, auk þess sem það er ekki einu sinni víst að ísland komist á EM, við mætum hvíta-rússlandi í sumar minnir mig.
Hefur einhver heyrt það? Ég ætla ekki að dæma um hvort það er gott eða ekki, en þetta lag hljómar allavega grunsamlega mikið eins og Rage against the machine.
mitt lið renault kemur á óvart og vinnur 2 fyrstu keppnirnar! spurning hvað gerist, ég held að alonso komi til með að keppa um titilinn í ár, ekki bara lenda í 6. sæti eins og venjulega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..