Ég var einu sinni með fótboltaliðinu mínu á Akureyri, við vorum að fara að sila á Blönduósi og við stoppuðum á Greifanum og fengum okkur að borða. Ég pantaði pizzu og gos fyrir ca. 4000-5000. Svo þegar ég er inni í klefanum á Blönduósi og að verða búinn að skipta um föt - við komum nokkrir fyrstir - kemur þjálfarinn inn og segir við mig: ,,Þú borgaðir ekki pizzuna". Ég hafði semsagt gengið út og gleymt að borga…