Þegar ég var lítill strákur þá fór ég oft í afmæli til vina minna. Þá tíðkaðist, eins og nú til dags, að horfa á vídeó og urðu þá teiknimyndir oft fyrir valinu, eins og gefur að skilja þegar afmælisgestir eru ungir krakkar. Í þessum afmælum sá ég margar skemmtilegar teiknimyndir en ein stendur upp úr og gnæfir yfir hinar í minningunni. Þessi frábæra teiknimynd heitir Rusli og Snyrti og þótti mér hún svo skemmtileg að ég notaði hana í mínu eigin afmæli, nokkrum áður síðar. Rusli og Snyrti er...