Það er enginn af þessum þáttum ómissandi. Það eru samt sumir af þeim alveg skemmtilegir en ekkert frábærir eins og Seinfeld eða eitthvað. Two and a half man er alveg glataður þáttur. Ég skil ekki hvernig einhverjum gat dottið í hug að hafa Alan í þessum þættir (þ.e. gaurinn sem leikur hann).
æi gaur, hvað er fkn að þér? hehe. Hann var í Albacete en ekki Real Sociedad. Ég hélt að þetta væri gaurinn sem var í láni hjá Alaves frá Liverpool en þetta er greinilega ekki hann. Ég meina, ég get gert mistök þó það sé ótrúlegt, heheheheheh.
craig bellamy eru klassakaup allavega. Ég held að hinir eigi ekki eftir að hafa jafnmikil áhrif á liðið. Kannki Gonzales eigi eftir að koma með einhverja ferska strauma annað slagið en ég sá hann í nokkrum leikjum með Alaves og hann stóð sig nokkuð vel. Þeir voru óheppnir að fá ekki Daniel Alves, klassaleikmaður þar á ferð.
nú því ég hef aðra skoðun en þú? Af hverju segirðu þetta? Kannski finnst mér að menn eigi að fá það sem þeir eiga skilið en þú ert greinilega eitthvað rosalega gáfaður og veist betur en allir aðrir, þannig að segðu mér af hverju! Og reyndu að gera það án þess að blóta ( gangi þér vel). Allt sem maður les eftir þig þá ertu að blóta einhverjum öðrum eða segja að einhver sé vitlaus. Svoldið erfitt að vera ekki sama um hvað þér finnst.
Æi, vertu ekki svona vitlaus og vera að verja Materazzi. Skoðaðu bara eitthvað af þessum video-um af honum á youtube.com og þá fattaru kannski hvað ég er að tala um. En ég er nokkuð viss um að þú fattir það samt nú þegar og ert bara að vera barnalegur.
Ég er nú ekki sammála þér um að ítölsku leikmennirnir séu aumingjar, þarna er hver harðjaxlinn á fætur öðrum. Það var ekkert meira um leikaraskap hjá þeim frekar en öðrum liðum á mótinu. Þetta var vissulega ekki gáfulegt hjá Zidane en það veit enginn okkar hvernig samskiptin þeirra á milli voru. Kannki var Materazzi búinn að pirra hann allan leikinn og Zidane fékk bara nóg. Maður er kominn með meira en nóg af einhverjum hálfvitum hér á hugi.is sem eru að kalla Zidane hálfvita. Þið hafið ekki...
það er ekki mikill tímamismunur hér og í S-Afríku. Tímabeltin fara eftir lengdargráðum en ekki breiddargráðum. S-Afríka er nokkurn veginn suður af Íslandi þannig að það munar ábyggilega ekki meira en 2 tímum.
desailly fékk að taka sína medalíu á HM 98 þrátt fyrir að hafa verið rekinn útaf. Auvitað máti Zidane fá medalíuna með hinum, hann skammaðist sín bara og þess vegna mætti hann ekki.
Hann sagði við umboðsmann sinn að materazzi hefði sagt eitthvað mjög alvarlegt, ekkert annað. Getur séð meira um það hér http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=37145
það er kannski ekkert sem réttlætir svona hjá Zidane en það vita flestir að Materazzi er ruddi og alger fáviti og hefur bókað sagt eitthvað til að pirra Zidane.
ég tel frekar líklegt að Ítalir vinni Frakka í úrslitaleiknum. Ítalir eru með svoddan massavörn með Buffon og Cannavaro í fararbroddi enda eru þeir bara búnir að fá á sig 1 mark það var óverjandi sjálfsmark. Svo eru þeir líka að spila frábæran sóknarbolta. Ég segi vinni Frakka þar sem ég geri ráð fyrir að þessi tvö lið mætist í úrslitum.
einn af bestu leikjunum í keppninni hingað til. Maður var á nálum allan tímann. Þó það hafi ekki verið mikið um færi í venjulegum leiktíma þá var svo mikil barátta og maður vissi að við minnstu mistök þá yrði liðunum refsað. Cannavaro, Pirlo og Grosso menn leiksins, cannavaro samt bestur.
ég held ekki beint með frakklandi en ég vona samt að þeir komist í úrslit frekar en Portugal. Maður fer líka sjálkrafa að halda smá með Frökkum þegar Zidane er að spila svona vel, allavega ég.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..