Ég get sagt þér það að aukaspyrnurnar eru ekki hluti af því besta hjá honum. Hann er greinilega ennþá að læra á þessu skot(láta boltann flökta) og er ekki orðinn jafngóður í því eins og t.d. Pirlo og Juninho. Ég man eftir 2 aukaspyrnumörkum hjá honum.
ég veit ekki. Hann var held ég með svitabandið í seinni leiknum á móti Bremen og hann spilaði mjög vel þá. Ég held allavega að hann hafi verið með það.
Fyrri helminginn af leikunum sem eru búnir núna þá var Ronaldihno bara frekar slappur og stoppaði alltaf leikinn eins og þú sagðir en samt var hann að setja eitt og eitt mark. En núna eftir að hann skipti úr þessum hvítu skóm yfir í svarta(ég veit ekki hvort það tengist því eitthvað) þá er hann búinn að spila mikið betur og er mikið hættulegri.
Hann er kannski ekki besti leikmaðurinn í heiminum en hann kemst nálægt því. Hann er bókað besti kantmaðurinn. Það er mikill munur á honum núna og í fyrra. Hann er mikið beinskeyttari núna og er ekki bara að einbeita sér að gera flott trick heldur tekur hann menn mikið oftar á og tekst það líka bara frekar oft og skapar mjög oft hættu.
Vá, family guy er bara einfaldlega ekki fyndið. Allavega er ég löngu kominn með leið á því. South Park þátturinn Cartoon Wars segir ágætlega hvað mér finnst. Ég meina, ér er nokkuð sammála því sem þar er sagt.
Hann sagði reyndar á undan að hann hefði verið að vinna sig upp í minniháttar hlutverkum og svo árið 1994 sprakk allt. Þannig að hann sagði ekki að Ace Ventura hafi verið fyrsta myndin hans, bara fyrsta myndin eftir að allt “sprakk”.
Shit hvað ég var pirraður að sjá þetta. Þetta eru bara skemmdarverk og þeir græða ekki neitt á þessu. Þetta er bara krafs. Skrifuðu þarna einhver þrjú B á strætóin þarna fyrst. Vá, þeir geta ábyggilega montað sig af því við stelpurnar. Svalir gaurar.
Mynd númer 3 snerist nú bara um actionið. Mjög lítið um söguna eða plot fannst mér. Númer 2 var svona 5 sinnum betri. Það var allt í lagi svosem að sjá 3 einu sinni. Ég væri ekki til í að sjá hana oftar og ég vona að 4 verði öðruvísi og betri.
Ég sagðist ætla að hugsa um að pæla í að mæta. Ég hefði aldrei mætt. En það þarf einhver að láta mig fá upplýsingar og svona fyrir vent áður en útslitin verða. Ég get ábyggilega komið svona 10 minútur yfir 6.
Allavega ef þú kíkir hérna http://home.skysports.com/livescores/football/ þá sérðu að það var skipting á 63 mínutu þannig að seinni hálfleikur hlýtur að hafa verið spilaður.
Það getur varla verið að hann sé 100% frjáls. Ég hlustaði á Rás 2 á næstum hverjum degi í heilt ár og það voru oft sömu lögin oft á dag. Eins og lagið þarna Nine million bycicles með Katie Meluha. Glætan að Óla Palla og Ásgeiri Bogasyni(Poppland þ.e.a.s.) finnist það svo skemmtilegt að þeir spili það á næstum hverjum degi. Tala nú ekki um mest spilaða lagið í fyrra: Ég vil fá mér kærustu með Hjálmum. Ömurlegt lag sem ég trúi ekki að starfsfólkinu finnist svona skemmtilegt. Bætt við 6....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..