Langar bara að segja mína sögu, var einu sinni afar dugleg að setja inn greinar hérna og ég held að það sé alveg kominn tími á mig aftur. Fyrir nokkrum árum kynntist ég manni sem var æðislegur, hafði aldrei kynnst öðru eins. Hann var rómantískur, með áhugamál, mjög myndarlegur og flott vaxinn, hafði barasta allt sem til þarf ;) En já fyrstu vikurnar og mánuðirnir voru dans á rósum, sumarbústaðaferðir, útileigur, bíltúrar og piknik. Tala nú ekki um öll blómin og litlu gjafirnar. Svo hófst...