Ég er búinn að keyra mikinn fjölda af minni gerðum Ford í seinni tíð og þeir hafa aldrei valdið mér vonbrigðum. Focus er vafalaust besti bíll í sínum flokki, nýja Fiestan líklegast sömuleiðis. Eldri Fiesta er enn skemmtilegri og var að nálgast Peugeot 306 í aksturseiginleikum og Ford Ka er enn skemmtilegri en Fiesta að mig minnir þó ekki jafni hann 306. Ford Puma? Önnur saga, hann er með skemmtilegustu bílum sem ég hef ekið og þar sem að á þeim lista er líka að finna t.d. Mazda MX-5 Miata...