H&M, Mango, Levi's, Zara og svo minnir mig að dolce& Gabbana sé ofar í götunni, annars fór ég ekkert í þær búðir svo ég man mjög takmarkað eftir þeim. En Já, þetta er ein stór verslunargata. Á hvaða hóteli verðuru?
Ég las einhvern tíman að þessa 7 ára ógæfa tengd því að brjóta spegil væri vegna þess að í gamla daga tók það fólk ca. 7 ár að safna sér fyrir nýjum spegli(mjög einfölduð útgáfa)… annars þá svona í tengslum við hjátrú almennt þá eru tölurnar 7 og 3 voðalega algengar. Já…æææi.. Það er svo margt sem fólk trúir að boði ógæfu… Ég persónulega trúi ekki.
úúú, Uppáhalds (verslunar)gatan mín er í Barcelona, Passeig de gracia. Allar aðalbúðirnar eru við þessa götu og Casa Milà er must see. Ææii í rauninni er Passeig de gracia bara það besta við Barcelona.
Whhhhhaaaaattttt!?!?!?!? Ég fór einu sinni í klippingu sem að ég sver að tók ekki meira en 45 mínútum hjá Sverri og ég borgaði 6þús. Bætt við 9. febrúar 2009 - 17:26 Eða samt… Ég ætla semí að draga þetta til baka þar sem að ég geri ráð fyrir því að ég geti ekki munað 100% svona smáatriði af einhverju sem að gerðist í fyrra.
Ekki hugmynd… við ákváðum að gefast bara upp á þessu. Skólinn ætlar að senda með okkur eitthvað plagg upp á að við séum nemendur og mögulega mun virka… efast samt um það.
Þú færð þetta hvergi á Íslandi, ég er líka að fara í námsferð eftir tvær vikur og við hringdum út um allt. Fyrirtækið sem að sá um þetta á íslandi er hætt eða eitthvað á þá leið. Þú þarft að panta þetta í gegnum ISIC síðuna.
Það er fullt af glósum á netinu… Annars er basically aðalatriðið það að Magnús hafnar Snæfríði þrisvar, fyrst fyrir bækurnar svo fyrir…. eitthvað og svo í þriðja sinn fyrir… eitthvað, ég man ekki. Hann hafnar henni sem sagt einu sinni í hverjum hluta bókarinnar. Uhhhhehhhh…. Já. Magnús elskar Snæfríði, Snæfríður elskar Arnæ… Arnæ getur ekki elskað Snæfríði því að hann er ógeðslega busy við það að vera giftur ríkri konu í Köben og að hugsa um bækurnar sínar og framtíð Ísland… Já! hann hafnar...
Gott: Maður getur klárað það á sínum eigin hraða(innan vissra marka samt sem áður) Slæmt: Það er fucking ömurlegt að vera í skólanum frá 8:10-16:30 og þurfa svo að læra heima fyrir einhver 4-5 fög þegar að maður kemur heim.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..