mér finnst þessi umræða furðuleg, sérstaklega í ljósi þess að öll liðin eru búin að vinna hin liðin í vetur. Ég skal alveg viðurkenna að SR var ekkert að spila neitt alltof vel á móti Birninum í síðasta leik, en hey, þeir þurftu þess heldur ekki, slökuðu virkilega á í þriðja leikhluta en unnu samt 7-4. Er ekki bara málið að sýna SA forsmekkinn af því sem koma skal og rassskella þá ærlega og jafna stigatöfluna, það eina sem þarf er að vilja vinna, SR getur það alveg. Áfram SR, áfram SR