Núna er nóttin loksins liðin. Ég er ekki búin að sofa mikið því að hugsanir mínar hafa haldið fyrir mér vöku. Þannig er staðan að ég og kærastinn minn náum ótrúlega vel saman, og samband okkar er næstum alveg fullkomið. Nema það er eitt sem ég get ekki hætt að hugsa um… Kærastinn minn tilheyrir þessum vinahópi sem hann umgengst mjög mikið. Það er svo sem ekkert að því nema að hann vill aldrei taka mig með þegar hann fer að skemmta sér með þeim. Ég er aðeins yngri en hann, en ég held samt...