Sælir CS félagar. Ég hef fylgst með þeim hugmyndum sem verið hafa í gangi uppá síðkastið um val í landslið vort. Þar hafa komið fram margar merkar tillögur en mér hefur þó þótt vanta ýmislegt í þær. Það á að nota tækifærið og koma okkar hagsmunum á hreint með stofnun nokkurs konar félagi sem sér um skipulagningu okkar mála. Svona félög á að byggja upp svipað og fyrirtæki þar sem valið er í stjórn félagsins árslega. Stjórnin ber svo ábyrgð á rekstri félagsins, eins og ráðningu þjálfara og...