Fjöll í austri fagurblá freista dalabarnsins. Ungur fylgir æskuþrá upp til jökulhjarnsins. Sveimað heimahögum frá hef ég vors á degi, víða stíða þræddi þá þunga hraunavegi. Heiðin breiða hugumkær hvetur viljann ofar. Leiðin seiðir, fráum fær, fögrum sýnum lofar. Gangan sækist öruggt enn urðarróti móti. Einatt hlutu heiðamenn höggvinn fót á grjóti Hver, sem ofar á að ná, einskis metið getur þótt í fangið fái sá fjúk og hretið betur. Anda heitum yndi nóg unaðsreitir geyma. Seinna leitar þráin...