Ég held að þessi Trance hatara vitleysa sé komin út af því að fólk hlsutar of mikið á FM957 :) Þar heyrir fólk í væluskjóðum eins og Dario G og Lasgo sem koma illu orði á ALLAN Trance sem gefinn er út, hvernig sem hann er. En fólk áttar sig ekki á því að þetta er bara ein sub-grein í Trance tónlist, og sú lélegasta í þokkabót! Ef þú nennir ekki að hlusta á einhverjar kellingar væla, skiptu þá um lag, finndu hard trance, Goa, Acid eða PsyTrance, eða hvað það er sem þú hlustar vanalega ekki á…...