Náttúran í mér er villt, og tryllt hún öskrar strídsöskrum.. Og fólkinu sem gengur hjá, þeim blöskrar við lætin í mér! Í upprennandi rökkrinu syngja fuglarnir. Sólin fer hjá sér, felur sig bak við fjall og roðnar á skýin, sem líða löturhægt yfir og allt um kring. Á meðan spila ég af fingrum fram…og aftur kryfjandi leiðina að lífinu til mergðar…