Í hjarta mínu er landakort, það leiðir mig veg, slóða,fjöll og straumharðar ár. Oft hef ég villst í skógi tálsýna, en hraður slátturinn vekur mig upp af draumi glapræðis. Mjúkt og hlýtt flæði hjartans, sendir strauma til ástvina minna nær og fjær. Sorgin þiðnar sem vetrarmjöll, í sólinni. Örfínn þráður sálarinnar vefur örlög mín til framtíðar í ljósi vonar og kærleika.