Saga Zeppelin byrjaði sumarið 1968 þegar að gítarleikarinn Jimi Page virtist vera sá eini í hljómsveit sinni The Yardbirds sem hafði áhuga á því að halda henni gangandi og leitaði að mönnum í hljómsveitina. Í The Yardbirds höfðu einnig verið Eric Clapton og Jeff Beck . Hann réð fyrst reynda session bassaleikarann John Paul Jones á bassa og byrjaði svo að leita að söngvara. Fyrsti kosturinn var Terry Reid en hann var upptekinn við annað og benti honum á Robert Plant sem hafði sungið með...