Sælt veri fólkið. Ég ætla aðeins að tjá mig um hvað mér finnst um rapp (Þið þurfið ekki að óttast neitt skítkast á rapp, ég er sjálfur rapp aðdáandi) Já, ég hef lengst af hlustað á rokk/metall og líkað vel en ég hef alltaf haft gaman af rappi sem hefur texta sem innihalda eitthvað. Ég hef verið mikill aðdáandi XXX rottwielerhunda frá upphafi þótt ég hafi ekki neitt hlustað á þá í svona 3-4 ár þá byrjaði ég á því aftur þegar ég sá þá live um daginn. Síðann er það þetta iðnaðarframleidda rapp....