UM HANA SYSTUR MÍNA Sáuð þið hana systur mína sitja lömb og spinna ull? Fyrrum átti eg falleg gull. Nú er ég búinn að brjóta og týna. Einatt hefur hún sagt mér sögu. Svo er hún ekki heldur nízk: hún hefur gefið mér hörpudisk fyrir að yrkja um sig bögu. Hún er glöð á góðum degi, glóbjart liðast hár um kinn, og hleypur, þegar hreppstjórinn finnur hana á förnum vegi. Jónas Hallgrímsson