Ég er búin að eiga þennan ágæta og hræódýra spilar í ca. eitt og hálft ár og hann hefur alltaf spilað allt eins og engill þar til um daginn. Ég var að spila disk - allt í fína - setti svo annan í - og skyndilega voru komnar tvær myndir á skjáinn. Núna get ég s.s. bara horft á efni í spilaranum ef ég sætti mig við að hafa tvær samaþjappaðar myndir í gangi í einu. Kannast einhver við þetta vandamál? Þetta er ekki sjónvarpinu að kenna - ég er búin að prófa aðra dvd spilara - og einnig skipta um...