Það er fallegur vormorgunn þann 26. maí árið 2028. Það var virkilega komið að þessum degi, deginum sem við höfðum öll vonað að myndi aldrei koma. Dauði hans hafði ekki nægt til að koma í veg fyrir þetta skelfilega frumvarp, það var of úthugsað, það var of gott til að vera satt. Hér sit ég á bekk út í rjóðri. Ég er 16 ára, ljóshærður, einmana drengur sem er að byrja í menntaskóla. Nú á víst besti tími lífsins af hefjast. Einhvern veginn efast ég um það þó allir séu að segja það. Ég held að...