Bara mitt álit: Það er ástæða fyrir því að þröngar buxur eru oft kallaðar Skinny jeans, þær eru hreinlega bara fyrir mjótt fólk. Ef að vinkona þín er þybbin þá á hún að klæða sig í samræmi við það. ATH. þetta er náttúrulega ekki persónulega til vonkonu þinnar því ég get ekki sagt hvort þær fari henni eða ekki. Ég er heldur ekki að segja að þeir sem séu ekki með “fullkominn”(matsatriði) vöxt eigi bara að klæða sig í kartöflupoka heldur eru til önnur snið sem henta stærri vexti betur en...
http://www.tamadrum.co.jp/world/products/accessories/tension_watch/index.html Þetta hérna mælir spennuna á skinninu sem er það sem breytir tóninum en ekki bara hversu hert hver skrúfa er fyrir sig. Þannig að ef þú ert búinn að ná góðu sándi í trommuna þá geturu notað þetta til þess að tryggja að skinnin sé jafn strekkt allsstaðar. Svo skrifar þú niður hver spennan er á hverju skinni fyrir sig og ert þá enga stund að stilla trommuna aftur því þú veist nákvæmlega hversu strekkt skinnið á að...
Það fór ekki að bera á orðanotkuninni eiga efni á nema fyrir örfáum árum og það hjá okkar kynslóð. Að hafa efni á er upprunaleg mynd orðasambandsins en að eiga efni á er seinni tíma afbökun.
Googlebattle.com http://www.googlebattle.com/?domain=%22eiga+efni+%E1%22&domain2=%22hafa+efni+%E1%22&submit=Go%21 Nei samt, ef þú prófar að slá bæði inn þá sérðu greinilega hvort er rétt.
Pabbi var með EMG aktíva pickuppa lengi vel í Gibson ES-335 og hljómaði það mjög vel vegna þess að gítarinn sjálfur er úr góðu efni og vel smíðaður sem gefur honum góðan hljóm og EMG pickupparnir náðu að koma honum mjög vel til skila vegna þess hve hlutlausir þeir eru og lita sándið lítið.
EMG pickuppar geta virkað mjög vel í Hollowbody gítar vegna þess hversu rosalega hlutlausir þeir eru. Alveg þess virði að skoða þá ef gítarinn sjálfur hljómar mjög vel. Svo er gott ráð að fylla gítarinn bara af dagblöðum. :að minnkar feedback alveg helling.
2. Þjóðinni verður ekki bjargað úr skuldaánauð úr því sem komið er. Hvers vegna mótmæltuð þið ekki *áður* en allt var komið í óefni, fyrst *þið* eruð svona klár? Hahaha! Ertu hálfviti, við buðum okkur ekki fram í þessar stjórnunarstöður!
Þetta eru ekki einhver skipulögð samtök, en ef það voru einhverjir sem héldu að þeir væru að tala fyrir alla þjóðina þá eru þeir einstaklingar á villigötum. Flestir voru nú þarna á sínum eigin forsendum. Sammála þér með það að það er fáránlegt að halda að maður geti talað fyrir heila þjóð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..