Mér hefur tekist mjög vel að gera þetta sjálfur, á sínum tíma þá las ég mér helling til um þetta á netinu og hef síðan prófað mig áfram og orðið betri og betri. Ég nota til dæmis hvorki Mustang brú né Buzz Stop, ég einfaldlega setti shim undir hálsinn og get þá hækkað brúnna meira sem setur meiri þrýsting á hana þannig að strengirnir sitja fastar í, annað sem virkaði vel var að stækka raufarnar fyrir strengina á þeim þykkari og halla þeim svolítið þannig að þrýstingurinn ofan á söðlana...