Öll stóru trúarbrögðin búast við að meiri opinberun verði gefin af kennara í framtíðinni. Kristnir vonast eftir Endurkomu Krists, Búddistar búast við hinum Fimmta Búdda, Múhameðstrúarmenn búast við Imam Mahdi. Sumar greinar dulspekinnar kenna að allir þessir séu í raun ein og sama persónan. Í London býr maður nokkur að nafni Maitreya. Hann hefur búið þar síðan 1977. Hann hefur kennt og verið talsmaður í asíuhverfinu í London. Hann er ekki trúarleiðtogi heldur fræðari í sem víðustum...