Bandaríski tónlistarmaðurinn Aaron Carl (mynd) verður sérstakur heiðursgestur á næsta Breakbeat kvöldi, þar sem hann mun taka sér hlutverk MCs ef svo má að orði komast. Á lokahnykk Breakbeat.is á Iceland Airwaves í fyrra tók Aaron hljóðnema í hönd og vakti mikla lukku allra viðstaddra. Þótti það takast svo vel upp að ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn nú 4. mars á Breakbeat.is kvöldinu á Kapital. Þar mun Aaron Carl stíga á stokk ásamt plötusnúðum Breakbeat.is þeim Gunna, Kalla og Lella...