Á við þetta sama vandamál, og þá sérstaklega að þegar ég er eitthvað að tala við stelpur þá miða ég þær við fyrrverandi, og ef þær eru ekki eins og hún þá er stelpurnar bara off. Og þó ég verði kannski skotinn í smá stund af einhverri, þá hverfur það eins og dögg fyrir sólu þegar þetta verður eitthvað alvarlegara, ég bara missi áhugan. Ég veit ekkert sjálfur hvað ég á að gera í þessu, það er komið meira en ár síðan fyrrverandi hætti með mér. Ég er bara jafn týndur og þú. Ef einhver kann ráð...