Hallærislegt? Bíddu, hvað í ósköpunum er svona hallærislegt við það að fólk tjái reiði sína og standi saman gegn svona óréttlæti (sem bitnar á ÖLLUM, líka komandi kynslóðum). Það sem mér finnst hallærislegt er fólk sem telur sig of gott fyrir svona lagað og leyfir þegjandi úreltu valdaníðslupakki að sitja við völd.
Ég sendi líka inn mynd af henni á /kynlíf, fannst það eiga betur við en /tíska þar sem hún var ekki beinlínis þekktust fyrir stælish, smekklegt fataval! En legend, engu að síður. Gullfalleg kona með öfundsverðan vöxt.
Takiði bara strætó! Mér finnst svo spes að svona margir keyri ennþá í skólann og séu viljugir að borga tíu þúsund eða eitthvað þvíumlíkt á mánuði á meðan það fær frítt í strætó :o grænna í þokkabót.
sama hér :) ég borða allaveganna ekki hreinar mjólkurvörur s.s. ost eða jógúrt eða eitthvað þvíumlíkt. Ég leyfi mér hinsvegar stundum að borða t.d. brauð með mjólk í.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..