Úff, ég fór frjálsum höndum um fullt af hlutum fyrir ári eða svo. Var svo gripin með ilmvatn og það átti að láta mig borga eitthverja fúlgu, en svo var aldrei hringt í mig svo að varð ekkert meira úr þessu. Hef aldrei stolið neinu síðan. Maður verður bara svo vanur því að komast upp með þetta að þetta verður að fíkn :/ En heimskulegt, mjög svo.
Hmm, þú veist að það er fullt af stelpum sem eru svona vaxnar? Þar á meðal tvær bestu vinkonur mín og ég tek það ekki í mál að fólk sé að kalla vöxt eins og þeirra ógeðslegan þegar þær hafa alveg sömu matarvenjur og “venjulegt fólk” og eru bara svona fæddar. Ef að einhver sendi inn mynd af stelpu svipaðri þér í vexti og hún væri kölluð ógeðsleg, yrðirðu ekki frekar sár?
Ókei róleg á því að kalla hana ógeðslega. Fólk er misjafnlega byggt, og sumar fæðast bara svona grannar og ekkert að því. Mér finnst það svo mikil hræsni þegar fólk er að dásama þybbið fólk fyrir að vera “venjulegt” og fer svo að dissa grannt fólk og kallar það öllum illum nöfnum. Ef að þú fæðist grönn, þá er það eðlilegt. Ekki ræður hún þessu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..