Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Vantar sófa (0 álit)
í Heimilið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver sófa gefina eða á lágu verði sem hann vill losna við?
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Að ná kattarhlandslykt úr fötum (7 álit)
í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Kötturinn minn sem meig í anddyrrið lét öðru hvoru hlandið gossa á íþróttaskó sem voru nálægt eftirlætisstaðnum. Eftir tvo þvotta í vélinni og borið í þá Doktor B eitthvað, þá lyktar annar skórinn ennþá! Hvað er til ráða? Kveðja, Kisa.
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Kötturinn hvílist ekki (10 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég var að fá mér kisu og keypti fullt af dóti, dýru flottu dóti. Nokkuð sem ég skil ekki, hún er dauðþreytt en hún fer ekki í rúmið sitt heldur situr bara uppi á risaklórtækinu sem ég keypti. Af hverju er þetta? Í byrjun pissaði hún líka bara á gólfið en fór ekki á kassann en ég hef séð hana fara þangað tvisvar núna. Er þetta eitthvað sem maður þjálfar og þá hvernig? Takk!
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Stafsetning í skoðanakönnun (1 álit)
í Spunaspil fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Fara stjórnendur ekki yfir stafsetninguna í skoðanakönnununum? Núna t.d er þarna könnun sem er svo morandi í villum í þessum fáum línum að manni svíður í augun við að horfa á hana. Smá dæmi, ,,teinkt“= tengt, ,,eiða''= eyða. Þetta er eitthvað sem ætti að kippa í liðinn.
Sodastreamtæki óskast (6 álit)
í Heimilið fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Er ekki einhver sem vill losa sig við gamla Sodastreamtækið? Kveðja Kisa.
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Hjálp: Pissar á gólfið (17 álit)
í Kettir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Er einhver sem veit hvernig maður getur fengið köttinn ofan af því að pissa á gólfið? Högninn okkar er rúmlega árs gamall. Hann lengi ógeldur (fór seint að breima) en byrjaði þá að pissa í anddyrrið. Við geldum hann og lengi vel var allt í lagi. SVo tók hann upp á því að pissa í blaðakörfuna í anddyrrinu. Við losuðum okkur við hana. Einhver tími leið. Þá fór hann einfaldlega að pissa alltaf á sama staðinn þar niðri. Við höfum nuddað trýninu upp úr og skammað hann, prófað að þrífa með ediki...
Gæludýrin (3 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þarf maður að kaupa sér gæludýr eða getur maður hænt að sér eitthvað af þessum dýrum sem ganga út og inn hjá manni (furðulegt nokk því hurðir eru alltaf lokaðar..)? Hvað borða dýrin? Ég fór í búðina sem selur alls kyns dót en þar var ekki hægt að kaupa dýrafóður, bara dýranammi. Og engin dýrarúm heldur! Hins vegar var nóg af ólum og dóti. Er ekki einhver sem á dýr sem getur aðstoðað mig við þetta? :9 Og hver er aðalkosturinn við að eiga dýr?
<a...
Gæludýrin (7 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þarf maður að kaupa sér gæludýr eða getur maður hænt að sér eitthvað af þessum dýrum sem ganga út og inn hjá manni (furðulegt nokk því hurðir eru alltaf lokaðar..)? Hvað borða dýrin? Ég fór í búðina sem selur alls kyns dót en þar var ekki hægt að kaupa dýrafóður, bara dýranammi. Og engin dýrarúm heldur! Hins vegar var nóg af ólum og dóti. Er ekki einhver sem á dýr sem getur aðstoðað mig við þetta? :9 Og hver er aðalkosturinn við að eiga dýr?
<a...
Hversu gamall/gömul ertu? (0 álit)
í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Breytast áhugamálin? (3 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þau raðast væntanlega eftir persónuleikanum en breytast þau eitthvað eftir því hvað maður lætur þau gera? T.d horfa á sjónvarpið, lesa, vera í sundi og svoleiðis? Eða eru þau alltaf eins? Takk fyrir svör :)
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Vandaðar umsagnir eða réttara sagt skorturinn á þeim. (23 álit)
í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Eins og fjallað er um nokkuð ítarlega í öðrum pósti hér beint fyrir neðan þá er sáralítið um vandaðar umsagnir hérna á smásagnasvæðinu. Af hverju skyldi það vera? Flestar umsagnir hér skiptast í tvo flokka: Þetta er æðislegt, hrein snilld! og svo Ömurlegt! Þú er fáránlegur höfundur! Hvað græðir höfundur sögu á svona skilaboðum? Þetta eru svo sannarlega ekki umsagnir á söguna hans. Á undanförnum mánuði hef ég séð 2 pósta sem myndu flokkast sem raunverulegar umsagnir. Þar sem höfundur umsagnar...
Hvað þurfa þau að eiga marga vini til að fá stöðuhækkun? (8 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Er að velta þessu fyrir mér. Á 2 vinkonur (hann á auðvitað enga vini, enginn tími fyrir það fyrst hann vinnur, restin af tímanum fer í þarfir og að læra!) en engin stöðuhækkun í lengri tíma. Þarf marga vini til að þetta gerist? Hvernig finnur maður út hvaða Sims eiga svipuð áhugamál? Ég hef bara verið að ganga á röðina.
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Pirrandi:Þegar þau hundskast ekki af stað! (0 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Eitt sem fer alveg hryllilega í mig og er ömurlega pirrandi. Í sims eru reyndar nokkrir hlutir sem eru svona en þetta er eitt versta atriðið… Maður sér að þau verða að fara á klósettið og smellir á klósettið til að senda þau þangað (þrátt fyrir að þau ÆTTU auðvitað að fara þangað sjálf!) en fara þau þangað strax? Neibb. Rauða klósettblaðran kemur fyrir ofan hausinn á þeim svo arga þau og arga, beygja sig saman og kveina! Í stað þess að drulla sér af stað eins og maður sagði þeim fyrir 2...
Seinagangur á morgnana (1 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Er einhver leið til að flýta því hvað það tekur hryllilega langan tíma fyrir þau að drulla sér á fætur? Maður krossar á reitinn Svefn svo þau vakni, þá tekur við hálftíma dæmi þar til þau eru komin á klósettið! Tekur engan smá tíma! Tek fram að ég er búin að kaupa dýrasta rúmið svo það sé hámarks hvíld. Og þegar þau fara á klósettið! Svona c.a 15 mínútur þar! Út í hött.
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Hvernig lætur maður þau klæða sig? (3 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Konan er heima hjá mér og hún er alltaf á náttfötunum. Nema þegar hún fer í sund, þá fer hún í sundföt og er þá í þeim það sem eftir er dagsins. Maðurinn fer í hergallann og er þá í honum nema eftir baðið. Mig minnir reyndar að konan klæði sig í föt ef ég læt hana fara í bað. Veit þetta einhver?
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Föt úr kvikmyndum (3 álit)
í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Vona að einhver hérna viti þetta. Ég hef heyrt af netverslun þar sem maður getur pantað föt sem eru eins og föt sem notuð voru í kvikmyndum, t.d gæti maður keypt frakka eins og Neo er í í Matrix o.s.frv. Hefur einhver veffangið?
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Uppáhaldsbókin ykkar (20 álit)
í Bækur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þetta hefur áreiðanlega verið rætt áður en… Kem samt með þetta ;) Hvaða bók munduð þið segja að væri ykkar uppáhaldsbók og hvers vegna? Er þetta líka besta bók sem þið hafið lesið? Ég veit að þegar stórt er spurt er fátt um svör :) Nú get ég ekki einu sinni verið með! Ég á bara uppáhaldshöfunda en enga sérstaka uppáhaldsbók. Held samt að ein besta bók sem ég hef lesið hafi verið Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón eftir Vigdísi Grímsdóttir. Ég man að hún greip mig þvílíkum heljartökum. Verð...
Á virkilega enginn á smásagnaáhugamálinu uppáhaldshöfund?? (10 álit)
í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Póstaði um þetta efni fyrir nokkru en mér til ótrúlega mikillar undrunar komu engin svör. Á ég trúa því að inni á þessu áhugamáli, sem er HELGAÐ smásögum, þá eigi sér enginn sína uppáhaldssmásagnahöfunda? Engin uppáhaldssmásagnasöfn? Er fólk hérna virkilega ekki að lesa smásögur? Ég á nú bágt með trúa því, það væri bara of fáránlegt. Hmm, þá hlýtur hin skýringin að fólk sé svona ofboðslega bælt..;) Jæja, út með það? Með hverjum er mælt? Ég kláraði Óvænt endalok e.Roald Dahl fyrir nokkru,...
Askurinn er ljómandi skemmtilegur! (3 álit)
í Spunaspil fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Fyrir nokkuð mörgum árum kom upp í hendurnar á mér Askur Yggdrasils spilið. Ég hafði það af að spila Spunameistarabókina en ekki hina. Spilið virkaði hins vegar svo geysilega flókið að ég lagði aldrei út í það að stjórna þessu fyrir neinn (enginn sem ég þekkti kunni að spila kerfið) og því rykféll það í herberginu mínu. Á spilamótinu um daginn var ég hins vegar svo lánsöm að spila hjá honum Frikka og skemmti mér þetta líka vel! Reglurnar eru auðvitað nokkuð flóknar á ýmsum sviðum, t.d...
Minntu mig á (4 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Minntu mig á að mynnast við þig að muna muninn á mínum munni og þínum. Að strjúka ei er þú strýkur mér því strokur þínar eru mínar.
Er hægt að ná gömul sinnepi úr? (1 álit)
í Heimilið fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Lenti því miður í því að dropi af sinnepi datt niður í hvítan, handútsaumaðan dúk sem ég á. Setti þetta í þvott sem biospray (hefði auðvitað átt að fara í þvottahús) og auðvitað er ennþá gulur blettur á dúknum. Er eitthvað hægt að gera til að ná þessu úr? Bletta með bleykiefni? Eitthvað annað?
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Endilega setjið spurningina í titilinn (3 álit)
í The Sims fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mikið hryllilega eru þeir þreytandi þessir póstar hérna sem heita bara:hjálp! með mismunandi mörgum spurningamerkjum. Hvað um að setja í titilinn það sem fólk vantar hjálp með? T.d Hjálp:hvernig eignast maður vini? Eða Þjónustustúlkan hættir alltaf hjá mér! eða Hvernig set ég downloadaða hluti inn? Það myndi segja manni hvað er í póstinum, ekki satt?
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Frida og The Hours (0 álit)
í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sá Fridu í gærkvöldi og The Hours fyrir 10 dögum. Mæli eindregið með þeim báðum. Mikið er dásamlegt að horfa á myndir sem renna ljúflega áfram, snerta við einhverju í manni, eru ekki öskur, sprengingar,hávaði,skothríð. Þetta eru myndir sem skilja eitthvað eftir, hvor um sig. The Hours segir sem sé frá þrem konum, Virginiu Wolf, konu sem byggir á söguhetju hennar og svo konu sem er að lesa söguna. Þetta fléttast saman á snilldarlegan hátt og tengingin kemur fram í lokin. Leikurinn er fyrsta...
Equilibrium:Geðveik! (2 álit)
í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég var að horfa á myndina Equilibrium á sunnudagskvöldið og bara vá! Hún er hreint út sagt ótrúlega flott! Alveg þarna við hliðina á Matrix að mínu mati. Senurnar eru rosalega flottar, kvikmyndataka skemmtileg, flottir búningar, skemmtileg hugmyndafræði, bardagasenurnar eru ótrúlegar…. Þetta er með betri myndum, amk flottari, sem ég hef séð í langan tíma og er sem sagt alveg jafn góð Matrix að nánast öllu leyti. Endilega sjáið hana við tækifæri.
<a...
Merkilegt hvað fólk tjáir sig lítið hérna... (4 álit)
í Smásögur fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Finnst fólki almennt leiðinlegt að tjá sig um smásögur? Vill það bara senda inn sögur og búið? Mjög furðulegt. Annað hvort eru engin svör við póstum eða einhver örfá. Hvað veldur eiginlega?
Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok