Jæja, ég kem mér beint að efninu. Viktor Krum átti að vera ljótur eða í það minnsta ansi fýlulegur, en hvað fáum við?? Einhvern voða sætan sykurdreng með skegg! Fleur Delacour átti að vera alveg ofboðslega hrikalega falleg. En þess í stað taka þeir fyrsta listræna asnarassinn *Afsakið orðbragðið* sem þeir finna. Cedrig Diggory er annars mjög fínn. Rupert *ehemm* sítt hár, hvað varstu að hugsa drengur? Jæja takk fyrir lesturinn. Nú líður mér betur. ————– Tinni I.