Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kukl
Kukl Notandi frá fornöld 14 stig

Aftur og aftur... (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég sá það sem ég vildi sjá ég fann það sem ég þóttist þrá en aldrei, aldrei óskaði ég mér þessa kvöl, að rispa sál mína á brennandi möl. Þó frostið beit mig og aðvaraði þá fann ég ekki, hlustaði ekki ég hugsaði ekki um annað en nautnina sem blindaði mig líkt og gert hefur við mann og annan. Svo stendur sannleikurinn andspænis mér… ögrar, stríðir. Vogar sér að segja að ég eigi eftir að skransa í brennandi mölinni aftur, aftur og aftur.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok