Hvað segir það um samfélagið sem við lifum í að lögregla hafi rétt á því að beita, greinilega eftir hentugleika, efnavopni sem veldur ólýsanlegum kvölum, og getur valdið varanlegum augnskaða og jafnvel blindu? Þetta er gersamlega, algerlega óviðunandi. Hópur af fólki hefur ekki roð við skjaldarvegg af sérsveitarmönnum sem eru hver og einn einasti vopnaður kylfum, brynjum, hjálmum, og höggvernduðum samfestingum, og eru einnig allir vel þjálfaðir karlmenn á besta aldri í góðu líkamlegu formi....