Spurning hvort þessi uppskrift sé of sein… vona að þú hafir ekki þurft hana á aðfangadag :) En hér er ein sem mér finnst góð (er reyndar með valhnetum ): Waldorf salat Fyrir fjóra 3 græn epli 10 valhnetukjarnar Sósa: ½ dl rjómi ½ dl sýrður rjómi, 18% 1 msk sykur 1 msk sítrónusafi Salt Ágætt að byrja á sósunni. Blanda saman rjóma, sýrðum rjóma, sykur, sítrónusafa og sósan smökkuð til með salti. Eplin skræluð, hreinsuð og skorin mjög smátt. 5 valhnetukjarnar skornir smátt og blandað saman við...