Sá sem horfir á mig sér mig ekki, skilur ekki og veit ekki hvað það er sem er ég. Sá sem horfir á mig sér aðeins það sem ég vel fyrir hann að sjá, og skynjar einungis atferli mitt á þeirri stundu er við mætumst. Því sá sem sér mig lætur ekki eins og ekkert sé heldur mætir augnaráði mínu, og sér mig. Því hann skilur, og þekkir þá varnargarða sem standa fyrir framan sálina og varna þér inngöngu. En hann veit einnig að við þetta augnaráð er ekki að fást því ég vil ekki að þú sjáir mig, dæmir...