Jæja, þá er maður kominn af fyrstu raftónleikunum sínum og ég verð nú bara að segja að þessir tónleikar/þessi tónlist fór mörg þúsund kílómetra fram úr mínum björtustu vonum, þótt ég haf búist við miklu. Þetta voru tónleikar raftónlistarkennara við Tónlistarskóla Kópavogs eða Haxrec. Í Hexrec eru: Camilla Söderberg Ríkharður H. Friðriksson Hilmar Þórðarson Fyrsta verkið hét Sýnheimar, í því lék Ríkharður H. Friðrikson á Pc 1600x og gagnvirkt tölvukerfi, hann samdi líka verkið. Hann stjórnaði...