Leyfðu honum að fara, ég gerði það. Minn fyrrverandi vildi ekki vera í sambandi lengur með mér en ég vildi ekki skilja það því ég elskaði hann svo mikið og sá ekki sólina fyrir honum. Sambandsslitin voru það erfiðasta sem ég hef þurft að ganga í gegnum í lífinu (án gríns) en ég er ánægð að ég gekk í gegnum þetta, því þetta samband var komið í rúst, og ég líka. Mér líður ágætlega í dag en maður á það til að finna fyrir smá söknuði þegar manni langar til að kúra eða eitthvað, en ég hundsa það...