Ég varð eiginlega bara hrædd við þetta eftir að ég sá þessa “veru” eða hvað sem þetta var sem ég sá. Ég lá á bakinu uppí rúmi, nývöknuð. Svo fattaði ég að ég var föst. Það var enþá hálfdimmt, en ég sá samt alveg. Svo sá ég eiginlega bara útlínur, mjög skýrar, örugglega af manni(ég veit alveg að þetta voru ofskynjanir, ekki halda að ég sé eitthvað kreisí). Hann/Það eða hvað sem þetta var, var á hnjánum hægra megin við hliðina á mér, og ég einhvernvegin fann fyrir því að það var verið að horfa...