Þetta gerist mjög oft að tíkur hætta að mjólka snemma, bara persónubundið. Þurrmjólk fyrir hvolpa kostar um 5000 kall fyrir 5 lítra sem er bara alltof hátt verð þannig þú getur reddað þér á stoðmjólk og nýmjólk á meðan í stuttan tima því þeir eiga held ekki að fá kúamjólk (gengur illa að brjóta niður mjólkursykurinn)
Mér finnst svo fyndið þegar krakkar (börn) eru að trúlofa sig. Þau vita ekki baun hvað það er einusinni. Þetta er einskonar “krakkagifting”, þau að reyna að vera geðveikt fullorðin eitthvað að trúlofa sig. :p
Myndi ekki gefa kisunni neinn fisk, aldrei. Þeir fara úr hárum ef þeir fá fisk, og farðu í dýrabúð og fáðu gott fóður þar, hef heyrt góða hluti um fóður sem heitir Arden. Royal canin er bara svo dýrt.
Sagði það einmitt fyrir ofan að ég er ekki með það mikið af bólum að ég þurfi að fara á lyf. En þetta er svona á leiðinni að skána held ég. Alltaf þegar bólurnar eru að fara, spretta þær upp aftur þegar síðasta bólan er farin. =/ En þetta er í góðu núna í bili allavega, takk samt :)
Þessi hundur er greinilega bara athyglissjúk frekja :P Myndi halda áfram að hundsa hann eða segja honum að þegja, eða kaupa svona geltiól til að prufa, þó ég hafi litla trú á þeim. Annars held ég að þú verðir bara að sætta þig við þetta á endanum.
Skil ekki afhverju fólk er að nöldra hérna um leiðinlegt fólk á msninu þeirra, bara blocka og eyða þessu liði ef það er svona hryllilega “heimskt og pirrandi”.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..