Ég átti XT Turbo ´86, sjsk og hann eyddi ekki miklu. Mér fannst þetta algjör snilldarbíll og sá ég mikið eftir honum þegar ég seldi hann. Það eru ennþá nokkrir svona bílar hér á götunni en þó enginn XT6 (held ég) Turboinn þótti skemmtilegri en XT6 Ef að minn gamli kæmi á sölu þá held ég að ég myndi ekki hugsa mig um, þetta var rosalega skemmtilegur bíll bæði í langkeyrslu og innanbæjar. “Obey your master, master!!”