Þessi system hafa fengist í Tónastöðinni en það er ekkert vit í þeim finnst mér, eins og sagt hefur verið áður þá er þetta bara show off, geta líka verið truflanir í þessum senditækjum ef þau eru ekkert of góð hef ég heyrt.
Svo með góðum overdrive eða distortion effect geturðu auðvitað fengið gott þungt hljóð útúr honum, það er nú samt enginn yfirgerandi bassi í þessum gíturum held ég.
Ég held að Stratocaster sé góður í flest, hef reyndar ekki mikla reynslu af honum úr mjög þungum metal eða þungu rokki en hann ætti að henta í flest rokk, popp, jazz, blús og bara flest held ég, annars er ég enginn sérfræðingur um þetta.
Held að þú ættir að reyna, virðist sem að þú vitir allaveganna slatta um básúnu svo að af hverju ekki, það væri alveg frábært að fá fleiri greinar frá þér, líkaði mjög vel við blásturshljóðfæragreinina þína sem þú gerðir fyrir nokkrum vikum.
Já hehe, pældi svosem ekki í því, lampa magnari, en þetta var náttúrulega í stórri íþróttahöll svo að ég held að fyrir minni gigg sé þessi magnari sem er til umræðu mjög hentugur og í versta falli hægt að mica up sem mér finnst ekki slæmur kostu.
Haha ef þetta nær inná tónlist, dægurmál væri fínt, sorp enn betra, segi svona, konan vill eflaust vel bara vantar örfáar skrúfur í hausinn held ég en mér er MJÖG illa við hana.
Ég hef enga reynslu af þessum magnara en mér sýnist þetta vera alveg nóg til að spila á litlum giggum (uppí 300 manns kannski) svo geturðu auðvitað micað hann upp ef þú ert að spila eitthvað stærra með hann, til dæmis á Söngvakeppni Samfés í ár var Fender magnari, um 100 W ef svo stór og hann hljómaði bara ágætlega miðað við gæði magnarans micaður og svona, þá fyrir yfir 1000 manns.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..